Aðalfundur Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna verður haldinn þriðjudaginn 17. maí kl. 17:00 í Borgartúni 41 í Reykjavík. Félagar sem greiddu félagsgjöld 2015 hafa atkvæðisrétt á fundinum.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf í samræmi við lög félagsins.
- Skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið starfsár.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar. Reikningsárið er almanaksárið.
- Stjórnarkjör.
- Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Önnur mál.
Á dagskrá fundarins er líka kynning frá Heklu þar sem fjallað verður um rafmagnsbíla og þróun þeim tengdri.
Guðmundur Karl Einarsson
13. apríl 2016 18:37