Nú í jólamánuðinum eru margir sem gera sér glaðan dag, hitta vini og kunningja, fara út að borða eða gera sér dagamun með öðrum hætti. Oft fylgir að lyfta glösum í góðra vina hópi.
Þegar heim skal halda getur verið freistandi að fara bara á bílnum. Þetta voru bara 1-2 glös eða bjórar, eða mesta lagi 3-5. Eða hvað? Er ekki örugglega í lagi að aka eftir örlitla áfengisneyslu?
Umferðarlögin eru skýr hvað þetta varðar. Ekki má aka eftir að hafa neytt áfengis eða vímuefna. Þó refsiraminn sé miðaður við 0.5 prómill eins og er, þá er það lögbrot engu að síður að aka með 0.3 prómill í blóði. Ekki er ólíklegt að þegar ný umferðarlög taka gildi að þessi mörk verði 0.2 prómill. Það er nefnilega meira vitað í dag um áhrif áfengis á akstur en var um miðja síðustu öld Þegar 0.5 mörkin voru sett.
Það er óásættanlegt að aka undir áhrifum áfengis og vímuefna og því er mikilvægt að hafa í huga áður en menn gera sér glaðan dag að gera ráðstafanir til að komast heim aftur án þess að aka hafi þeir neytt áfengis. Fá einhvern annan sem ekki er undir áhrifum til að taka bílinn, taka leigubíl eða finna aðrar leiðir til að komast heim. Eitt af því sem gerist við neyslu áfengra drykkja er að dómgreindin minnkar og því verður erfiðara fyrir okkur að meta hvort við erum hæf til að aka að loknum gleðskapnum.
Milli 8-900 ökumenn gerast brotlegir árlega vegna ölvunaraksturs eða yfir 70 manns í mánuði. Það er sem betur fer að eiga sér viðhorfsbreyting því árið 2007 voru tæplega 110 manns brotlegir á mánuði. Þetta gerir um 34% minnkun.
Áhyggjur í dag eru ekki síður vegna þeirra sem aka undir áhrifum vímuefna en þeim hefur fjölgað sem lögreglan hefur stöðvað ár frá ári frá því að vera 344 árið 2007 og upp í 702 árið 2012 eða um 104%.
Við sem notum umferðina daglega til að komast milli staða eigum rétt á því að komast heilu höldnu milli staða án þess að eiga á hættu að ölvaður ökumaður eða undir áhrifum vímuefna skapi okkur hættu.
Um leið og Brautin-bindindisfélag ökumanna óskar öllum gleðilegra jóla hvetjum við ökumenn til að vera búnir að skipuleggja heimferðina í byrjun og tryggja að enginn aki ölvaður heim.
Einar Guðmundsson
formaður Brautarinnar
Einar Guðmundsson
21. desember 2013 14:56