Ökumenn hafa eflaust tekið eftir því að ljósabúnaði bifreiða á höfuðborgarsvæðinu er oft og tíðum ábótavant. Brautin – bindindisfélag ökumanna framkvæmdi nýlega athugun þar sem ljósabúnaður bifreiða var kannaður. Skoðað var ástand og notkun framljósa 2.200 bifreiða og afturljósa ríflega 2.000 bifreiða. Ekki var litið á stefnuljós eða hemlaljós.
31% bíla með biluð ljós
Lang algengast var að númersljós væru biluð eða rúm 18%. Þá voru tæp 7% bíla eineygðir að framan og tæp 5% með annað afturljósið bilað.
Hvers vegna að aka með biluð ljós?
Eflaust aka margir lengi án þess að ganga úr skugga um að ljósin séu í lagi. Þó er mjög auðvelt að kanna ástand þeirra. Þegar bíl er lagt framan við stórar rúður verslana og fyrirtækja sést auðveldlega hvort framljósin séu í lagi. Á sama hátt má bakka að slíkum rúðum til að kanna afturljós, hemlaljós og bakkljós.
Undirritaður átti samtal við starfsmann á verkstæði sem fær oft til sín bíla með biluð ljós. Hann fullyrti að algengt væri að menn sneru við þegar þeir heyrðu hvað það kostaði að skipta um eina peru. Ef bíleigendur geta sjálfir skipt um peruna felst kostnaðurinn eingöngu í perunni sjálfri. Sá kostnaður getur verið allt frá nokkur hundruð krónum fyrir peru í númersljós, 1.000-2.000 kr fyrir hefðbundnar perur í framljós en þó eru dæmi um að framljósaperur kosti allt að 40.000 kr. Þá er um að ræða gasfylltar perur sem eru mjög dýrar en endast á móti nokkuð lengi.
Við þetta bætist kostnaður við að skipta um perur því í ákveðnum tegundum bíla getur verið snúið að skipta um perur og í sumum tilfellum þarf sérhæfð verkfæri til verksins. Verð fyrir að skipta um perur getur farið upp í 10.000 kr. Kostnaður með peru og vinnu getur þannig verið á bilinu 40.000-50.000 kr þar sem um dýrar perur er að ræða. Í einstaka bíltegundum hafa jafnvel sést hærri upphæðir. Þessi kostnaður sem fælir marga bíleigendur frá og þeir ákveða frekar að bíða með peruskiptin þar til betur stendur á.
Öryggið í fyrirrúmi
Það ætti aldrei að draga það að láta gera við öryggisþætti bílanna, hvort sem það eru perur, hemlar eða hjólabúnaður. Að hafa ljósin í lagi eykur öryggi í umferðinni talsvert þar sem ökumaður sér betur í kringum sig og bifreiðin verður sýnilegri með ljósin í lagi. Hver kannast ekki við að hafa yfirsést aðvífandi ljóslausa bifreið? Það skiptir einnig mjög miklu máli að ljósin séu í lagi til að sjá betur gangandi og hjólandi vegfarendur.
Brautin skorar á þig ágæti ökumaður að næst þegar þú sest upp í bílinn athugir þú ástand ökuljósa og gerir þá viðeigandi ráðstafanir til þess að laga þau ef með þarf.
Einar Guðmundsson
10. desember 2012 23:10