Nú rétt í þessu var að ljúka Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni. Keppnin var haldin við Forvarnahúsið í Kringlunni. Töluverð spenna varð í keppninni enda margir reyndir ökumenn á svæðinu. Mesta keppnin var á milli efstu keppenda í kvennariðli. Það var ekki fyrr en í lokabrautinni sem úrslitin réðust. Einungis 19 sekúndur skildu þær tvær efstu að. Reyndar var spennan í akstrinum hjá körlunum mikil og einungis 16 sekúndur sem skildu að eftir aksturinn. En þar sem einnig er prófað í umferðarreglum, varð munurinn meiri í lokin.
Úrslit urðu þessi:
Kvennariðill | ||
1. sæti | Birgitta Pálsdóttir Íslandsmeistari | 496 sek |
2. sæti | Guðný Guðmundsdóttir | 515 sek |
3. sæti | Ragna Fanney Óskarsdóttir | 595 sek |
Karlariðill | ||
1. sæti | Ævar Sigmar Hjartarson Íslandsmeistari | 283 sek |
2. sæti | Garðar Ólafsson | 324 sek |
3. sæti | Daníel Sigurðarson | 371 sek |
Jafnframt var keppendum boðið að skipta sér í lið, hvort sem var eftir fyrirtækjum eða öðru. Í liðakeppni var tekið meðaltal liðsmanna og urðu niðurstöður þessar:
1. sæti | “Hvanneyri” | Birgitta Pálsdóttir Guðný Guðmundsdóttir |
377 sek |
2. sæti | Olís | Kristbjörn Ægisson Sigurður Bragason |
440 sek |
3. sæti | BÍKR Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur |
Daníel Sigurðarson Sigurður Rúnar Rúnarsson Örn Reykdal Ingólfsson |
455 sek |
Páll H. Halldórsson, formaður Brautarinnar er afar ánægður með hvernig til tókst en 25 keppendur voru skráðir til leiks. Páll segir keppni sem þessa mikilvægan hlekk í baráttunni fyrir auknu umferðaröryggi þar sem hún leggur áherslu á hæfni ökumanna. Þrátt fyrir að um keppni sé að ræða skili æfingin sér út í umferðina.
Ævar Sigmar Hjartarson, nýkrýndur Íslandsmeistari karla í Ökuleikni, var að vonum ánægður með árangurinn. Ævar er reyndur rallýökumaður og raunar fyrrum Íslandsmeistari í rallý á óbreyttum bílum. Hann var ekki í vafa um að æfingin úr rallýinu hefði skilað sér inn í Ökuleiknina. Ökuleiknin hafi þó allt annan blæ yfir sér en rallý en sé ekki síður áskorun.
Ökuleiknin var haldin á vegum Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna í samstarfi við Sjóvá, Vífilfell, Heklu og Krónuna.
Kókflaskan fellur. Í þessari þraut átti keppandi að snerta hvítu stöngina án þess að fella kókflöskuna. Það tókst ekki hjá þessum
Guðmundur Karl Einarsson
26. september 2009 17:27